Vetrarhátíð við Mývatn er einstakur viðburður á landsvísu þar sem fjölbreyttar hefðbundnar og óhefðbundnar vetraríþróttir eru stundaðar úti í náttúrunni. Við hvetjum alla gesti til að heimsækja Mývatn og nágrenni og njóta þess sem náttúran hefur upp á að bjóða dagana 4.-13. mars 2022!
Það eru frábær tilboð í gistingu, bað og vélsleðaferðir á meðan hátíðin stendur yfir. Lærðu að dorga með heimamönnum, kíktu á sleðahundana hjá Snow dogs, fáðu þér eitthvað gott að borða og skoðaðu náttúruundur svæðisins. Það er af nógu að taka! Gönguskíðaspor verða víðsvegar um svæðið og skíðalyftan í Kröflu opin svo lengi sem að veður og færð leyfir.
Við minnum gesti á að virða sóttvarnir!
Fólk er hvatt til þess að taka með sér gönguskó, gönguskíði og svigskíði og njóta alls sem svæðið hefur upp á að bjóða á sínum forsendum.
Sjáumst 4.-13. mars 2022!