Framkvæmdaleyfi er leyfi sveitarstjórnar til meiriháttar framkvæmda sem hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breytingar lands með jarðvegi eða efnistöku, og annarra framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum.
Framkvæmdaleyfi skal ávallt vera í samræmi við skipulag. Unnt er að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli aðalskipulags án deiliskipulagsgerðar eða grenndarkynningar, ef gerð er grein fyrir framkvæmdinni og fjallað ítarlega um hana í aðalskipulaginu. Að öðrum kosti kallar veiting framkvæmdaleyfis á að jafnframt liggi fyrir deiliskipulag af viðkomandi svæði. Í þeim tilvikum sem veiting framkvæmdaleyfis kallar á gerð deiliskipulags getur sveitarstjórn þó veitt framkvæmdaleyfi án deiliskipulagsgerðar að undangenginni grenndarkynningu sé framkvæmdin í samræmi við aðalskipulag hvað varðar landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Sótt er um framkvæmdaleyfi hjá skipulagsfulltrúa Skútustaðahrepps. Gildistími framkvæmdaleyfa er 12 mánuðir frá samþykki sveitarstjórnar.
Kröflulína 4:
- Alta 6.7 (243,91 KB 31.10.2016)
- Athugun á jarðstreng sem kost í 220 kV (1,79 MB 31.10.2016)
- Lota 29.6 (173,12 KB 31.10.2016)
- Svar Landsnets til Skútustaðahrepps 21.10.2016 (925,53 KB 31.10.2016)
- Sveitarstjórn fundur 43. 2016 (248,25 KB 31.10.2016)
- Umhverfisáhrir jarðstrengs EFLA 20.10 (825,22 KB 31.10.2016)
- Ýmsir tenglar (186,30 KB 31.10.2016)
- Minnisblað 2 Alta (240,29 KB 31.10.2016)
- Minnisblað 2 Lota (740,32 KB 31.10.2016)
- Náttúruverndarnefnd Þingeyinga (275,86 KB 31.10.2016)
- Orkustofnun 6.6 (165,42 KB 31.10.2016)
- Skipulagsnefnd 31. fundur 24.10.2016 (369,72 KB 31.10.2016)
- Svæðisskipulag háhitasvæða séruppdráttur (2,42 MB 1.11.2016)