Askasleikir er Mývetningur desembermánaðar 2021.
Hann er sjötti jólasveinninn kallaður sem kemur til manna, þann 17. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.
Þegar askarnir voru settir fyrir hunda og ketti til að sleikja var Askasleikir snöggur að ná í þá á undan.
Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:Sá sjötti Askasleikir,var alveg dæmalaus.-Hann fram undan rúmunumrak sinn ljóta haus.Þegar fólkið setti askanafyrir kött og hund,hann slunginn var að ná þeimog sleikja á ýmsa lund.