Haldinn að Hlíðavegi 6,
miðvikudaginn 15. september 2021, kl. 11:00.
Fundinn sátu:
Alma Dröfn Benediktsdóttir, Arnar Halldórsson, Sylvía Ósk Sigurðardóttir, Helgi Arnar Alfreðsson.
Fundargerð ritaði: Alma Dröfn Benediktsdóttir, formaður.
Dagskrá:
1. | Menntamálastofnun – Ytra mat á Reykjahlíðarskóla 2019 – 1811020 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu umbótaáætlunar í kjölfar ytra mats Menntamálastofnunar. | ||
Vinna við starfsáætlun er í fullum gangi þessa dagana og er Gunnþór ráðgjafi hjá Ásgarði að aðstoða við þá vinnu, starfsáætlun er byggð á ytra mati MMS og verður kynnt fyrir skólaráði í september og skólanefnd á næsta fundi. | ||
2. | Reykjahlíðarskóli – Skólaakstur – 2005027 | |
Samið var við Egil Freysteinsson um skólaakstur út þetta skólaár. | ||
3. | Reykjahlíðarskóli: Starfsmannamál – 1705004 | |
Skólastjóri fer yfir stöðuna á starfsmannamálum í Reykjahlíðarskóla fyrir veturinn. | ||
Það vantar skólaliða við Reykjahlíðarskóla í vetur og einnig liggur fyrir að það vantar tímabundið umsjónakennara fyrir 2 og 3 bekk. Farið verður í að auglýsa eftir umsjónakennara á næstu dögum. | ||
4. | Leikskólinn Ylur- skólastarf – 2108026 | |
Í vetur er unnið að meiri samþættingu á milli leikskólans Yls og Reykjahlíðarskóla. Ásgarður ráðgjafafyrirtæki mun vera skólastjóra og starfsfólki til aðstoðar við þá vinnu. | ||
Á sameiginlegum starfsmannafundi 16. september hefst samvinna skólanna þar sem ráðgjafi frá Ásgarði leiðir þá vinnu. Nefndin fagnar því að unnið sé að meiri samþættingu á milli skólastiganna og óskar eftir að fá að fylgjast með hvernig samvinnan gengur í vetur. | ||
Lagt fram | ||
Fundi slitið kl. 12:00.