Fundur haldinn í Skjólbrekku 25.ágúst 2021 kl 20:00.
Mættir: Halldór Árnason, Álfdís S. Stefánsdóttir, Birgir V. Hauksson og Böðvar Pétursson sem ritaði fundargerð.
Böðvar setti fund og bauð fundarmenn velkomna til fundar.
- Niðurjöfnun gangna: Heildar fjártala í hreppnum er 3.804 en á til fjallskila eru 1.654 kindur. Jafnað var út 151 dagsverki. Útbúinn gangnaseðill. Farið yfir önnur fyrirmæli 2021. Réttardagur á Hlíðarrétt og Baldursheimsrétt er 5. September. Gangnaseðill og önnur fyrirmæli 2021 samþykkt. Sjá meðfylgjandi fylgiskjöl.
- Beitarhólf og aðalskipulag: Umræða hefur verið í gangi um hvort rétt væri að útbúa beitarhólf á Austurafrétti 2 – 3 eftir atvikum. Næsti fundur í þeirri umræðu hefur verið boðaður 31. Ágúst kl 16:00 á skrifstofu Skútustaðahrepps.
- Borist hefur ábending um að það þurfi að laga slóðina inn í Búrfellshraun þar sem slóðin kemur austur úr Heiðarsporðargirðingunni. Formaður Landeigendafélags Vogunga Ólöf Þ. Hallgrímsdóttir hafði samband og sagði að landeigendur í Vogum tækju mjög jákvætt í málið. Nefndin tekur undir þessa ábendingu og beinir því til sveitarstjórnar að sótt verði um styrk úr styrkvegasjóði til verksins. Það væri mikill kostur ef að hægt væri að framkvæma verkið í haust, þó svo að styrkurinn kæmi ekki fyrr en næsta vor.
- Böðvar tilkynnti það að hann hefði haft samband við oddvita og óskað lausnar frá störfum í Landbúnaðar og girðinganefnd af persónulegum ástæðum og þetta væri því síðasti fundur hans að svo stöddu. Böðvar þakkaði nefndarmönnum kærlega fyrir samstarfið og óskaði nefndinni velfarnaðar í sínum störfum.
Fleira ekki bókað, fundi slitið kl: 21:10