ÚLLA ÁRDAL HEFUR VERIÐ RÁÐIN Í STARF MARKAÐS- OG ÞRÓUNARSTJÓRA MÝVATNSSTOFU

  • Fréttir
  • 12. janúar 2021

Úlla Árdal hefur verið ráðin í starf markaðs- og þróunarstjóra Mývatnsstofu. Staðan er ný og markmiðið að efla núverandi verkefni Mývatnsstofu ásamt því að víkka starfsemina út enn frekar í samstarfi við Nýsköpun í Norðri. 

 

Úlla hóf störf þann 5. janúar. Hún mun sinna verkefnum sem styðja við uppbyggingu innviða í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit með það að markmiði að gera svæðið ákjósanlegra til búsetu og fjárfestinga ásamt því að vekja frekari athygli á náttúruparadísum Norðurlands eystra. Mývatnsstofa heldur utan um fjölda viðburða s.s. Vetrarhátíð við Mývatn og Mývatnsmaraþonið sem að Úlla mun aðstoða við að þróa og stækka enn frekar. 

 

Úlla er margmiðlunarfræðingur frá Margmiðlunarskólanum og digital compositor frá Campus i12 í Svíþjóð. Hún starfaði síðast sem fréttamaður RÚV á Norðurlandi, þar áður á sjónvarpsstöðinni N4.

 

Mývatnsstofa er samnefnari ferðaþjónustu í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit. Hún samræmir markaðs- og kynningarmál fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og sveitarfélögin gagnvart innlendum og erlendum ferðamönnum. Helsta hlutverk Mývatnsstofu er að markaðssetja svæðið í þeim tilgangi að fjölga ferðamönnum og lengja dvöl þeirra ásamt því að kynna svæðið sem ákjósanlegan stað til búsetu og fjárfestinga.

 


Deildu þessari frétt

AÐRAR FR?TTIR

Fréttir / 22. janúar 2021

Guðjón Vésteinsson greinir orkukosti

Fréttir / 4. janúar 2021

Styrkur til uppsetningar hleðslustöðva

Fréttir / 21. desember 2020

Opnunartími skrifstofu yfir jól og áramót

Fréttir / 14. desember 2020

Leikskólinn Ylur- Skóli á grænni grein

Fréttir / 14. desember 2020

51. fundur

Fréttir / 12. desember 2020

Engin Covid smit

Fréttir / 12. desember 2020

Fundur um COVID-19 úrræði stjórnvalda

Fréttir / 8. desember 2020

Ungmennaráð Skútustaðahrepps

Fréttir / 7. desember 2020

Dagskrá 50. fundar sveitarstjórnar

Fréttir / 3. desember 2020

Færð og aðstæður

Fréttir / 23. nóvember 2020

49. fundur

Nýjustu fréttir

Ungmennaráð Skútustaðahrepps

  • Fréttir
  • 26. janúar 2021

53. fundur

  • Fréttir
  • 25. janúar 2021

Grímunotkun í ÍMS

  • Fréttir
  • 21. janúar 2021

Sorphirðudagatal 2021

  • Fréttir
  • 18. janúar 2021

52. fundur sveitarstjórnar

  • Fréttir
  • 11. janúar 2021

Uppgjör á hitaveitu fyrir 2020

  • Fréttir
  • 4. janúar 2021

Niðurstaða sveitarstjórnar auglýst

  • Stjórnsýsla
  • 21. desember 2020

Flokkum yfir jólin

  • Fréttir
  • 16. desember 2020

Nú er komið að álestri hitaveitumæla

  • Fréttir
  • 14. desember 2020