Nú er komið að álestri hitaveitumæla

  • Fréttir
  • 14. desember 2020

Notendur hitaveitu Skútustaðahrepps

Nú er komið að því að senda inn álestur á hitaveitumælum í ykkar fasteign eins og undanfarin ár. Við viljum biðja ykkur um að senda inn álestur fyrir áramót.

 

Svona farið þið að:

Takið mynd af hitaveitumælinum ef kostur er, sendið með tölvupósti á netfangið solrun@skutustadahreppur.is.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja í tölvupóstinum: Heimilisfang, mælisnúmer, nafn og kennitala sendanda og hvaða dag lesið er af.

Einnig er hægt að hringja eða koma við á skrifstofunni með sömu upplýsingar ásamt álestri. Athugið opnunartíma skrifstofu yfir jól og áramót.

Ef þið þurfið aðstoð við álesturinn hafið þá samband við skrifstofu.

Athugið að ef fleiri en einn hitaveitumælir er í fasteigninni þarf að senda inn álestur af öllum mælunum ásamt mælisnúmer

Skilafrestur er til og með 31. desember 2020.

Leiðbeiningar um álestur á hitaveitumælum má sjá hér: https://www.youtube.com/watch?time_continue=11&v=hT6ZIGNrVL0

 

Í haust tókum við upp nýtt kerfi sem heldur utan um alla mæla og notkun. Kerfið er mun nákvæmara en áður var og er því hægt að biðja um auka aflestur hvenær sem er á árinu.

Við minnum ykkur á að láta okkur vita ef það verða breytingar á greiðendum mæla eða staðsetningu.

Eins og ykkur er kunnugt um eru hitaveitureikningar ársins byggðir á áætlun um hitaveitunotkun sem við reynum að láta endurspegla sem best raunverulega notkun. Notendur fá þá mánaðarlega senda áætlunarreikninga.

Eftir álesturinn er uppgjörsreikningur sendur út til viðskiptavina. Þar kemur raunnotkun liðins árs fram og þar með kemur í ljós hvort viðskiptavinur á inneign eða er í skuld vegna næstliðins árs.  Viðskiptavinir geta því átt von á reikningum með annarri krónutölu en þeir eru vanir.

Oft liggur skýringin á aukinni notkun á heimilinu en stundum kann að vera að um bilun sé að ræða.  Dæmi um þetta eru bilaðir ofnkranar eða bilun í stýribúnaði húsveitu sem veldur sírennsli vatns.  Þá er mögulegt að áætlun eða álestur sé rangur.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Skútustaðahrepps í síma 464-6660.

Þökkum góð viðbrögð

Hitaveita Skútustaðahrepps


Deildu þessari frétt

AÐRAR FR?TTIR

Fréttir / 22. janúar 2021

Guðjón Vésteinsson greinir orkukosti

Fréttir / 4. janúar 2021

Styrkur til uppsetningar hleðslustöðva

Fréttir / 21. desember 2020

Opnunartími skrifstofu yfir jól og áramót

Fréttir / 14. desember 2020

Leikskólinn Ylur- Skóli á grænni grein

Fréttir / 14. desember 2020

51. fundur

Fréttir / 12. desember 2020

Engin Covid smit

Fréttir / 12. desember 2020

Fundur um COVID-19 úrræði stjórnvalda

Fréttir / 8. desember 2020

Ungmennaráð Skútustaðahrepps

Fréttir / 7. desember 2020

Dagskrá 50. fundar sveitarstjórnar

Fréttir / 3. desember 2020

Færð og aðstæður

Fréttir / 23. nóvember 2020

49. fundur

Nýjustu fréttir

Ungmennaráð Skútustaðahrepps

  • Fréttir
  • 26. janúar 2021

53. fundur

  • Fréttir
  • 25. janúar 2021

Grímunotkun í ÍMS

  • Fréttir
  • 21. janúar 2021

Sorphirðudagatal 2021

  • Fréttir
  • 18. janúar 2021

52. fundur sveitarstjórnar

  • Fréttir
  • 11. janúar 2021

Uppgjör á hitaveitu fyrir 2020

  • Fréttir
  • 4. janúar 2021

Niðurstaða sveitarstjórnar auglýst

  • Stjórnsýsla
  • 21. desember 2020

Flokkum yfir jólin

  • Fréttir
  • 16. desember 2020

Nú er komið að álestri hitaveitumæla

  • Fréttir
  • 14. desember 2020