Fundargerð
19. fundur velferðar- og menningarmálanefndar haldinn að Hlíðavegi 6,
1. september 2020, kl. 15:00.
Fundinn sátu:
Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, Dagbjört Bjarnadóttir, Kristinn Björn Haraldsson, Jóhanna Njálsdóttir.
Fundargerð ritaði: Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir, formaður.
Dagskrá:
1.
Mývetningur - Vetrarstarf - 1909002
Kristinn Haraldsson formaður Mývetnings fór yfir vetrarstarf íþrótta- og ungmennafélagsins. Mývetningur mun einnig aðstoða við frístund hjá Reykjahlíðarskóla.
Nefndin lýsir yfir ánægju með flotta vetrardagskrá og þær fjölbreyttu æfingar sem verða í boði.
2.
Félagsstarf eldri borgara 2020-2021 - 2008042
Formaður fór fyrir yfir fyrirhugað félagsstarf eldri borgara veturinn 2020-2021. Starfið verður með hefðbundnu sniði; Ásta Price og Þórdís Jónsdóttir hafa umsjón með því og fyrirhugað er að hefja starf í október.
Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir fór fyrir yfir fyrirhugað félagsstarf eldri borgara veturinn 2020-2021. Starfið verður með hefðbundnu sniði; Ásta Price og Þórdís Jónsdóttir hafa umsjón með því og fyrirhugað er að hefja starf 7. október.
3.
Skútustaðahreppur: Hamingja sveitunga - 1808046
Dagbjört Bjarnadóttir fór yfir stöðu verkefnis og hvað er framundan. Vinnufundur er fyrirhugaður á næstu dögum.
Dagbjört Bjarnadóttir fór yfir stöðu verkefnis og hvað er framundan.
4.
Bókasafn Skútustaðahrepps - 2009004
Formaður nefndar fór yfir breytingar á nefndarstarfi. Formanni falið að ræða við oddvita.
Vel hefur gengið í sumar við skráningu í Gegni og er skráning langt komin. Nefndin leggur til að skráning verði kláruð og formanni falið að finna leiðir til þess.
Fundi slitið kl. 16:30.