10. fundur atvinnumála- og framkvæmdanefndar haldinn að Hlíðavegi 6 og í fjarfundi, 7. maí 2020, kl. 15:00.
Fundinn sátu:
Anton Freyr Birgisson, aðalmaður, Sigurbjörn Reynir Björgvinsson, aðalmaður, Edda Hrund Guðmundsdóttir, aðalmaður, Guðmundur Þór Birgisson, aðalmaður, Guðjón Vésteinsson, skipulagsfulltrúi og Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Guðjón Vésteinsson, skipulagsfulltrúi.
Dagskrá:
1. Íþróttahús og Reykjahlíðarskóli - Viðhaldsáætlun - 1911035
Skipulagsfulltrúi fór yfir framgang málsins frá síðasta fundi nefndarinnar.
Fulltrúi Verkís kom á verkstað 22. apríl s.l. og skoðaði aðstæður. Í framhaldi af því eru komin drög að verklýsingu, magnskrá og kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðrar vinnu við endurnýjun þaks á grunnskólanum. Kynnti skipulagsfulltrúi drögin fyrir nefndinni.
Hitakerfi í íþróttahúsi var einnig skoðað og tekið út er vinna hafin við tillögur að úrbótum á því ásamt tengingum við loftræsikerfi.
Atvinnumála- og framkvæmdanefnd samþykkir að senda verðfyrirspurn á valda verktaka hér í Skútustaðahrepp og nágranna sveitarfélögum. Nefndin gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi verklýsingu.
2. Skútustaðahreppur: Framkvæmdir 2018 - 1803023
Skipulagsfulltrúi fór yfir stöðu á þeim framkvæmdaverkefnum sem fyrirhuguð eru 2020.
Meðal annars var farið yfir aðkoma að íþróttamiðstöð, stækkun stæða við grunnskóla, aðkoma að vörumóttöku ásamt göngustíg að skóla. Rædd malbikun á Múlavegi, ljúka við gatnagerð í Klappahrauni, hitaveitulögn sunnan við Voga, áframhald á göngu- og hjólastíg o.fl.. Einnig farið yfir stöðuna á byggingu svartvatnstanki á Gullsandi á Hólasandi og næstu skref í því verki.
Atvinnumála- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og fagnar því að ákveðið hefur verið að halda sig við fyrirliggjandi fjárfestingaráætlun fyrir árið 2020.
3. Vinnuskóli 2020 - 2005002
Farið yfir sumarstörf hjá Skútustaðahrepp sumarið 2020.
Búið er að auglýsa eftir skráningum fyrir áhugasama um sumarstarf hjá sveitarfélaginu. Í framhaldinu verður auglýst eftir umsóknum um sumarstörf, bæði vinnuskóla ásamt störfum fyrir námsmenn o.fl..
Nefndin hefur áhyggjur af því fordæmalausa atvinnuleysi sem blasir við í sveitarfélaginu en fagnar jafnframt því framtaki sem Skútustaðahreppur hyggst fara í varðandi sumarstörf o.fl..
Nefndin kallar eftir stuðningi Vinnumálastofnunnar og frekari úrræðum frá henni til að draga úr afleiðingum atvinnuleysis innan sveitarfélagsins, bæði nú í sumar sem og næsta vetur.
Fundi slitið kl. 17:08.